Flest öll viljum við vera heilbrigð, eldast vel og líta vel út á hverju því aldursskeiði sem við erum á. Eitt af því fyrsta sem við tökum eftir er hvernig húðin breytist með árunum en við getum hjálpað henni að viðhalda stinnleika og fyllingu og þar kemur kollagen við sögu.
Kollagen er eitt mikilvægasta byggingarprótein líkamans. Það myndar burðargrind bandvefs í húð, beinum, sinum og liðböndum. Um 75% af þurrþyngd húðarinnar er kollagen, og án þess væri húðin hvorki teygjanleg né slétt.
Með aldrinum minnkar framleiðsla kollagens smám saman og það sést: húðin verður þynnri og viðkvæmari, teygjanleiki minnkar og hrukkur birtast. (Shuster,S.,et al.,1975)
Orðið collagen kemur úr grísku og merkir fyrri hluti þess eða „colla” lím en „gen” að framleiða.
Kollagen ásamt elastín eru til að mynda mikilvæg prótín í miðlagi húðar okkar, leðurhúðinni. Kollagen er nauðsynlegt til að hún haldi stinnleika sínum og fyllingu, en elastín til að hún haldist teygjanleg, nái upprunalegri stöðu þótt potað sé eða klipið í hana.
Hvað er kollagen?
Kollagen er trefjaprótein sem myndar stoðnetið í húðinni. Það er framleitt af bandvefs frumum (e. fibroblastar) og er aðallega úr amínósýrunum (glycine, proline og hydroxyproline).
Til eru yfir 20 mismunandi gerðir kollagens, en þessar eru helstar:
-
Gerð I og III eru ríkjandi í húð.
- Gerð II finnst mest í brjóski.
- Gerð IV í grunnhimnum húðar og æða. (Ricard-Blum, S.,2011)
Hvernig kollagen breytist með aldrinum.
Sagt er að eftir tvítugt minnki kollagen framleiðsla líkamans um 1% á ári. Þetta veldur því að húðin verður þynnri og viðkvæmari. Utanaðkomandi áhrif eins og reykingar, mengun og sólarljós hafa einnig mikil áhrif. Þetta dregur úr stinnleika húðarinnar, hún verður slappari og finna konur sérstaklega fyrir þessu eftir breytingaskeiðið.
Kollagen er því meðal allra mikilvægustu próteina í bandvefjum líkamans en þeir tengja saman líffæri og ýmsa vefi líkamans. Kollagen er sterkt, svo sterkt að það getur verið sterkara en stál en einnig mjög sveigjanlegt. Það er því nauðsynlegt að tryggja líkamanum kollagen á öllum æviskeiðum.
Eftir 25 ára aldur fer náttúruleg framleiðsla kollagens að minnka – um allt að 1–1,5% á ári.
Þetta tap eykst með:
- Sólarljósi (UV-geislun) sem veldur niðurbroti kollagens með ensíminu collagenase.
- Reykingum, sem draga úr blóðflæði og kollagenframleiðslu.
- Sykurneyslu, sem veldur glýkósýleringu (sykur binst próteinum og skemmir þau).
- Langvarandi streitu og skorti á svefni. (Varani, J., et al.,2006) og (Fisher, G. J., et al., 2002)
Hver er ávinningur kollagens fyrir húðina?
Bættur teygjanleiki, aukinn raki og sléttari húð
Kollagen er því meðal allra mikilvægustu próteina í bandvefjum líkamans en þeir tengja saman líffæri og ýmsa vefi líkamans. Með því stuðlum við að heilbrigðari húð og bindum vefi líkamans traustar saman í gegnum bandvefinn. Kollagen hjálpar húðinni að halda vatni og stuðlar að mýkt. (Bolke, L., et al. (2019).
Kollagen er sterkt, svo sterkt að það getur verið sterkara en stál en einnig mjög sveigjanlegt. Það er því nauðsynlegt að tryggja líkamanum kollagen á öllum æviskeiðum.
Rannsóknir sýna að inntaka kollagens (sérstaklega hydrolyseraðs kollagens) getur aukið raka og teygjanleika húðar og minnkað hrukkur. Í tvíblindri rannsókn á 114 konum á aldrinum 45–65 ára jókst teygjanleiki húðar verulega eftir 8 vikna neyslu á 2,5 g af kollageni daglega. (Proksch, E., et al. (2014).
Kollagen styður við endurnýjun húðarfrumna
Kollagen örvar bandvefsfrumur (e. fibroblasta) og stuðlar að meiri framleiðslu á bæði kollageni og elastíni. Þannig eykst endurnýjun og viðhald húðarinnar. (Zague, V. (2008).
Bandvefsfrumur (e. fibroblasts) eru frumur sem tilheyra bandvef líkamans, og eru eins konar „framleiðslustöðvar“ fyrir prótein sem halda vefjum sterkum og sveigjanlegum.
- Þær framleiða kollagen, elastín og önnur millifrumuefni (e.extracellular matrix) sem mynda stoðgrindina í húð, sinum og öðrum vefjum.
- Bandvefsfrumur ( fibroblasts) viðhalda og gera við vefi þegar þeir skemmast, til dæmis við sár eða öramyndun.
- Í hvíldarástandi kallast þær vefjafrumur (e.fibrocytar), en þegar vefur skaddast, „virkjast“ þær og fara að framleiða meira af kollageni og öðrum efnum sem hjálpa við enduruppbyggingu.
- Bandvefsfrumur (e. fibroblasts) eru lykilfrumur í framleiðslu kollagens, sem gefur húðinni styrk og teygjanleika.
- Með aldrinum eða vegna skemmda (t.d. frá útfjólubláu ljósi, reykingum, oxunarálagi) minnkar virkni fibroblasta og kollagenframleiðsla dregst saman, sem leiðir til hrukka, slappari húðar og hægari gróanda.
- Rannsóknir sýna að ákveðin næringarefni (eins og C-vítamín, amínósýrur og lífvirk peptíð úr kollageni) geta örvað bandvefsfrumur til að framleiða meira kollagen. (Alberts et al., 2022), (Kular JK et al., 2019), (Shigemura et al. 2012).
Kollagen fæst úr fæðunni og fæðubótarefnum
Til að styðja við kollagenmyndun þarf líkaminn:
- Próteinríkan mat (t.d. fisk, kjúkling, egg, baunir).
- C-vítamín, sem er nauðsynlegt fyrir myndun kollagens.
- Sink og kopar, sem styðja við ensím sem taka þátt í kollagenframleiðslu.
Kollagenfæðubótarefni (hydrolyseruð peptíð) eru vinsæl, og rannsóknir sýna að þau geta aukið rakastig og teygjanleika húðar, en best er að velja vottuð efni með klínískum gögnum. Við hjá Eylíf mælum með Smoother SKIN & HAIR
Niðurstaða
Rannsóknir hafa sýnt fram á ágæti þess að bæta kollageni við fæðuna, það er jafn sjálfsagt að bæta á kollagen búskap líkamans og að bursta tennurnar.
Kollagen er undirstaða heilbrigðrar, sterkrar og teygjanlegrar húðar. Þó að náttúruleg framleiðsla þess minnki með aldrinum, er hægt að draga úr áhrifum þess með réttum lífsstíl, góðu mataræði og, ef vill, vönduðum kollagenfæðubótarefnum.
Þannig getum við hjálpað húðinni að viðhalda sínum náttúrulega styrk og ljóma – frá unglingsárum til elliáranna.
Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf inniheldur íslensk hráefni ss. kollagen sem er unnið úr þorskroði, ásamt astaxanthin (smáþörungar). GeoSilica kísillinn og góð blöanda af vítamín og steinefnum sem eru nærandi og rakagefandi og hafa sannað ágæti sitt fyrir húð, hár og neglur. Góð reynsla er komin á notkun Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf og má lesa þær hér á síðunni.

Heimildir:
- Bolke, L., et al. (2019). A collagen supplement improves skin hydration, elasticity, roughness, and density: results of a randomized, placebo-controlled study.
- Shuster, S., et al. (1975). The influence of age and sex on skin thickness, skin collagen and density. British Journal of Dermatology.
- Ricard-Blum, S. (2011). The collagen family. Cold Spring Harbor Perspectives in Biology.
- Varani, J., et al. (2006). Decreased collagen production in chronologically aged skin: roles of age-dependent alteration in fibroblast function and defective mechanical stimulation. American Journal of Pathology.
- Fisher, G. J., et al. (2002). Mechanisms of photoaging and chronological skin aging. Archives of Dermatology.
- Proksch, E., et al. (2014). Oral intake of specific bioactive collagen peptides reduces skin wrinkles and increases dermal matrix synthesis. Skin Pharmacology and Physiology.
- Zague, V. (2008). A new view concerning the effects of collagen hydrolysate intake on skin properties. Archives of Dermatological Research.
- Choi, S. Y., et al. (2019). Effects of collagen tripeptide supplement on skin properties: A prospective, randomized, controlled study. Journal of Cosmetic and Laser Therapy.
- Postlethwaite, A. E., et al. (1978). Chemotactic attraction of human fibroblasts to type I, II, and III collagens and collagen-derived peptides. Proceedings of the National Academy of Sciences.
- [1] Þuríður Þorbjarnardóttir. „Geta kollagen og elastínþræðir í snyrtivörum haft áhrif á hrukkumyndun?“ Vísindavefurinn, 9. janúar 2017. Sótt 27. desember 2019. http://visindavefur.is/ svar.php?id=68109.
- [2] Suzan Obagi. „Why does skin wrinkle with age? What is the best way to slow or prevent this process?” Scientific American, 26. september 2005. Sótt 27. desember 2019. https:// www.scientificamerican.com/article/why-does-skin-wrinkle-wit/
- Alberts et al. Molecular Biology of the Cell, 7th ed. (2022) – kafli um connective tissue cells.
- Kular JK et al. Frontiers in Cell and Developmental Biology (2019) – „The role of fibroblasts in tissue repair and regeneration.“
- Shigemura et al. Journal of Agricultural and Food Chemistry (2012) – sýndi að kollagenpeptíð örva fibroblasta til aukinnar kollagenframleiðslu in vitro.
