Reynslusögurnar segja allt sem segja þarf

Reynslusögurnar segja allt sem segja þarf

Stofnandi Eylífar var í viðtali hjá Mbl.is á dögunum og sagði frá hvernig ferlið hafi verið við stofnun á Eylíf fyrir sex árum.

"Ólöf Rún Tryggvadóttir vonar að saga hennar geti orðið öðrum hvatning til að taka af skarið á miðjum aldri og spreyta sig á nýjum og krefjandi verkefnum. „Það er aldrei of seint að byrja á nýju verkefni,“ segir hún.

Efni sem eru í Eylíf vörunum, hjálpa líkamanum á ýmsa vegu.

Þær vörur sem Eylíf framleiðir hafa fengið nafn í samræmi við virknina: Active JOINTS fyrir liðamótin; Smoother SKIN & HAIR  fyrir mýkri og áferðarfallegri húð og hár; StrongerBONES fyrir sterkari bein; Happier GUTS til að styðja við meltingu og loks Stronger LIVER sem eflir starfsemi lifrarinnar.

Af þessum fimm vörum segir Ólöf að Active JOINTS sé vinsælust, að hinum ólöstuðum, en um er að ræða blöndu bólguhamlandi efna sem hafa reynst mörgum vel til að vinna bug á verkjum í stoðkerfinu. Eru þetta efni á borð við kalkþörunga og andoxandi astaxanthín, íslensk birkilauf, C-vítamín og D3-vítamín sem saman verka vel á liði, bandvef, bein, tennur og vöðva."

Hér er hægt að skoða viðtalið í fullri lengd.

Íslensk fæðubótarefni úr hreinum íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum.

Back to blog